Length7h 51m
About this audiobook
Hann heldur að enginn muni komast að leyndarmálinu – en hún veit sannleikann …
Maðurinn minn er læknir. Hann er klár og heillandi, allir treysta honum. Nema ég.
Á yfirborðinu lítur út fyrir að ég eigi allt – fullkomið hjónaband, fullkominn eiginmann, fullkomið líf.
En sannleikurinn er allt annar.
Drew Devlin læknir er ekki sá virðulegi maður sem hann gefur sig út fyrir að vera. Ástæða þess að við ákváðum að flytja í þetta gamla fallega hús með stórkostlega sjávarútsýninu var sú að við vildum gjarnan snúa baki við fortíðinni. Þetta átti að vera ný byrjun fyrir okkur.
Hins vegar hef ég komist að því að eiginmaðurinn lýgur að mér – aftur. Hann nýtir sér valdið sem starfið gefur honum til að eyðileggja líf fólks og taka nákvæmlega það sem hann langar í – sama hvaða áhrif það hefur á aðra.
En hann vanmetur mig. Ég hef nægan tíma í þessu stóra, einangraða húsi til að hugsa um öll mistökin sem hann hefur gert.
Og maðurinn minn hefur ekki hugmynd um hvað á eftir að gerast …
---
"Vá … Gat ekki lagt hana frá mér! … Óvænt flétta sem snéri mér í hringi! … Þessi á skilið fleiri en 5 stjörnur, hún er skyldulesning!" - Bókadómur Heidi Lynn
"Vá! … Mjög spennandi, ég las hana í einum rykk … Ég sat á stólbrúninni og nagaði neglurnar á meðan hjartað hamaðist! … Taugatrekkjandi bók sem fær hjartað til að slá hraðar, blaðsíðurnar fletta sér sjálfar og þú getur ekki lagt hana frá þér … Ég ELSKAÐI hana." - Bookworm86
Audiobook details
GenreMystery and Thriller
Length7 hrs 51 mins
Narrated byMargrét Örnólfsdóttir
FormatAudiobook
Publish dateJun 24, 2026
